Eskifirði 15. 05. 2024
Fundur í skólaráði Eskifjarðarskóla kl. 16:00
Skólaráð Eskifjarðarskóla sendir aftur þær spurningar sem áður höfðu farið frá ráðinu til Fjarðabyggðar og áréttar að sú greinargerð sem sveitarfélagið sendi skólaráði til baka svarar alls ekki þeim spurningum sem skólaráðið telur sig eiga rétt á að fá svör við.
Má t.d. nefna eitt dæmi en það er hversu illa útfært hlutverk fagstjóra er, í einu orði stígur hann ekki inni í ábyrgðarsvið skólastjóra í því næsta er hann orðinn samábyrgur í ákveðnum verkefnum og svo farinn að taka forystu í öðrum og þá væntanlega farinn að taka alla ábyrgð þar á. Skólaráð telur að slík svör verði Fjarðabyggð að endurskoða svo hægt sé að átta hinu raunverulega hlutverki.
Skólaráð Eskifjarðarskóla ítrekar að ráðið áskilur sér rétt til þess að leita samráðs í sínu baklandi sem er foreldrar, kennarar og starfsfólk skólanna. Til þess að slíkt samráð skili því sem beðið er um þurfa að koma skýrari svör frá sveitarfélaginu um þau atriði sem skólaráð hefur áður farið fram á.
Skólaráð Eskifjarðarskóla vill enn og aftur ítreka við fræðsluyfirvöld, bæjarráð, bæjarstjórn og bæjarstjóra Fjarðabyggðar að ráðið telur að það skynsamlegasta sem hægt væri að gera í stöðunni er að seinka þessum breytingum, vinna þær upp á nýtt í sátt og samlyndi við allt starfsfólk skólanna og skólasamfélagið í heild og skapa þannig einingu um skólamál í sveitarfélaginu.
Fyrir hönd skólaráðs Eskifjarðarskóla
Sigrún Traustadóttir
Formaður skólaráðs
Skólastjóri Eskifjarðarskóla