Fundargerð skólaráðs 20. janúar 2025

Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Samkvæmt 8. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 skal starfa skólaráð við hvern grunnskóla.

Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Ráðið skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, einum fulltrúa grenndarsamfélags auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið áður en endaleg ákvörðun um þær er tekin. Í starfsáætlun eru fjórir fastir á fundir skólaráðs en að auki er ráðið kallað saman ef upp koma mál sem nauðsynlegt þykir að bera undir það og fjalla um.

 

Fundur skólaráðs mánudaginn 20. jan 2025

Dagskrá: hlutverk skólaráðs og skóladagatal skólaársins 2025-2026 er yfirfarið

Mættir voru: Davíð, Freyr, Vilborg, Olla, Aníta, Marta, Nanna, Selma, Jóhanna G. og Sigrún.

 Dagskrá fundar: 

1. Sigrún byrjar fundinn á því að fara yfir hvað skólaráð þýðir og hvað skólaráði er ætlað að gera, sjá texta hér fyrir ofan.

2. Skóladagatal ársins 2025-2026 er síðan yfirfarið og engar athugasemdir komu frá meðlimum skólaráð og var dagatalið samþykkt af þeirra hálfu.

3. Rætt var um skólamál almennt hér á Eskifirði og aðstöðuleysið að hafa ekki íþróttahús til umráða. Skólaráð samþykkti að senda frá sér ályktun til bæjarráðs þar sem krafist verður svara um framtíð íþróttamála á staðnum. Jóhanna Guðnadóttir aðstoðarskólastjóri tók að sér að semja ályktunina og mun svo senda hana á meðlimi skólaráðs til yfirlestrar áður en hún fer til bæjarráðs, bæjarstjórnar og fjölskyldunefndar.

 

Fundargerð ritaði

Sigrún Traustadóttir skólastjóri