Fundargerð skólaráðs 11. október 2022

Hófst kl 15:00

Í skólaráði sitja:

Sigrún Traustadóttir - skólastjóri

Jóhanna Guðnadóttir - aðstoðarskólastjóri

Friðrik Á Þorvaldsson - fulltrúi kennara

Petra Vignisdóttir - fulltrúi kennara

Kamilla Borg Hjálmarsdóttir - fulltrúi starfsmanna

Anna Jónsdóttir - fulltrúi foreldra

Elísabet Ólöf Ásbjörnsdóttir -fulltrúi foreldra

Árbjörn Sigurður Hugason – fulltrúi nemenda

Pálmi Kristjánsson – fulltrúi nemenda

 

Málefni sem rædd voru á fundi:

1. Breyting á Skóladagatali Eskifjarðarskóla. Nýja og gamla dagatalið fylgir með Sigrún útskýrir breytinguna fyrir hópnum.

Ástæða breytingar er fyrirhuguð starfsmannaferð til Finnlands sem starfsfólk Eskifjarðarskóla er að fara í 19.-23. apríl 2023. Góð þátttaka er í starfsmannaferðinni.

Breyting er þannig að:

-starfsdagar 11. apríl er færður til 19. apríl.

-Starfsdagur 5. júní er færður til 21. apríl Til að ná 180 nemendadögum er nú seinasti skóladagur hjá okkur 5. júní og að loknum skólaslitum eru tveir starfsdagar 6. og 7. júní.

Skólaráð gerði engar athugasemdir við breytingarnar og er því breytingin samþykkt einróma.

Við óskum því eftir því að breytingin verði lögð fyrir á fræðslunefndarfundi 12. okt

 

2. Farið yfir starfsáætlun og Skólanámskrá Eskifjarðarskóla

Meðlimir hvattir til þess að fara yfir Starfsáætlun og Skólanámskrá Eskifjarðarskóla sem er ný uppfært á heimasíðu skólans.

 

Önnur mál:

- Fórum yfir þá staði sem við teljum að þurfi að laga og nefnt var leki á þriðju hæð og á bókasafni, sem og handlaugar, pissuskálar og salerni á klósettum á þriðju hæð.

- Viljum lýsa yfir stórum áhyggjum af ástandi íþróttahússins á Eskifirði. Útlit þess að utan og veggir innanhúss þurfa að fá yfirhalningu.

Þetta er óboðlegt í kennslustundum og þegar mesta rigningin er ekki hægt að nýta allan salinn í kennslu. Einnig er mikil þörf að uppfæra tækjabúnað í íþróttahúsinu.

 

Ekki fleira gert fundi slitið kl 15:45