Mættir voru: Sigrún Traustadóttir, Jóhanna Guðnadóttir, Friðrik Á Þorvaldsson, Petra Vignisdóttir, Kamilla B Hjálmarsdóttir, Anna Jónsdóttir, Elísabet Ólöf Ásbjörnsdóttir, Ásdís Ólsen Eðvaldsdóttir og Björn A. Ríkarðsson
Haldinn var fundur í skólaráði Eskifjarðarskóla þann 7. maí samkvæmt beiðni Fjarðabyggðar. Í viðhengi er fundargerð skólaráðsfundarins þar sem óskað er eftir frekari upplýsingum svo skólaráð geti veitt umbeðna umsögn.
Skólaráð Eskifjarðarskóla óskar eftir fresti til að veita umsögn þar til svör hafa borist við spurningum og skólaráðsfulltrúum hefur gefist tími til að eiga samráð við sitt bakland.
Spurningarnar eru þessar:
1) Samkvæmt skipuriti sem fylgdi greinargerðinni frá Fjarðabyggð þá er fagstjóri yfir skólastjóra en samkvæmt skipuritinu sem kynnt var á fundi með skólastjórum kom fram að fagstjóri er ekki yfir skólastjórum Hvað er rétt í þessu? Hvernig lítur hið rétta skipurit út?
2) Hvert er hlutverk skólafulltrúa?
3) Hver er starfslýsing hans?
4) Í skipuriti (þessu nýjasta) er kveðið á um að fagstjóri sé næsti yfirmaður skólastjóra. Því má velta fyrir sér hvernig næsti yfirmaður skólastjóra eigi að taka yfir verkefni og ábyrgð skólastjóra en lagalega bera skólastjórar grunn- og leikskóla faglega og rekstrarlega ábyrgð á rekstri leik- og grunnskóla. Hvernig á þetta að virka?
5) Rætt er um að fagstjóri hafi vinnuaðstöðu á fjölskyldusviði en samt á starf fagstjóra að fara fram að mestu innan skólanna. Hversu miklu starfshlutfalli er fagstjóra ætlað að sinna á fjölskyldusviði?
6) Mikilvægt er að starfslýsing fagstjóra liggi fyrir áður en hægt er að gefa umsögn um starf viðkomandi aðila.
7) Innra mati er ætlað að vera á ábyrgð fagstjóra en er lagalega á ábyrgð skólastjóra, hvernig fer það heim og saman?
8) Ef skólastjórar munu áfram bera ábyrgð, hver verður þá munurinn á ábyrgð skólastjóra og fagstjóra?
9) Munu skólastjórar ekki vera ábyrgðaraðilar yfir faglegu og rekstrarlegu starfi grunn- og leikskóla eins og lög gera ráð fyrir?
10) Í greinargerð er rætt um að starfslýsing skólastjóra verði samræmd starfslýsingu stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu sem og hlutverki fagstjóra. Hlutverk skólastjóra grunnskóla er skilgreint í sameiginlegu skjali Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands frá 2015 og er hluti af aðgerðaráætlun samninganefnda frá þeim tíma. Þar er komið inn á lagalegar skyldur skólastjóra og skilgreinda starfsþætti í störfum þeirra. Hefur Fjarðabyggð heimild til þess að breyta og bæta við það skjal?
11) Rætt er um ráðningar í þrjú ný stöðugildi skólaþjónustu: a) Hvað er gert ráð fyrir mikilli viðveru hvers þeirra á viku í hverjum skóla? b) Hvað er gert ráð fyrir að viðkomandi aðilar muni hver um sig nýta mikinn tíma dagvinnu í akstur á vikulegum grunni?
12) Hvert verður verksvið verkefnastjóra sem á sinna verkefnum tengiliða, vakin er athygli á því að samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við kennarasamband íslands vegna félags grunnskólakennara er óheimilt að fela þeim mannaforráð eða aðrar stjórnunarlegar skyldur. Þá er verkefnisstjóri samkvæmt kjarasamningum FG ráðinn til eins árs í senn. Ef um ótímabundið starf er að ræða er óheimilt að fastráða í starf verkefnisstjóra, því má ætla að eðlilegra væri að ráða deildarstjóra í það starf sem um ræðir, hvað er því til fyrirstöðu?
13) Hvaða menntunarkröfur eru gerðar til verkefnastjórastöðunnar og hver er starfslýsing hans?
14) Ekki kemur fram í skjali Fjarðabyggðar á þessum breytingum hvort breytingarnar kalli á uppsagnir einhverra starfsmanna einungis að ekki sé gert ráð fyrir aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra. Óskar skólaráð eftir svörum um hvort einhverjar uppsagnir verða og þá hvaða starfsmönnum á að segja upp.
15) Hverjir eiga að sinna þeim störfum sem deildarstjóri sérkennslu og aðstoðarskólastjóri hafa áður haft með höndum þar sem nýjar stöður eru án mannaforráða?
16) Hverju er verið að bæta við gæði skólastarfs í Fjarðabyggð með þessum breytingum?
17) Hver er heildarkostnaður við þessar breytingar að öllum þáttum meðtöldum?
18) Hver er fjárhagslegur ávinningur af þessum breytingu?
19) Tilkynnt er um þrjú ný stöðugildi skólaþjónustu, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa og náms- og starfsráðgjafa. Hvað er gert ráð fyrir mikilli viðveru hvers þeirra í Eskifjarðarskóla?
20) Hvernig verður skiptingu þeirra háttað á milli daga?
21) Hvað er gert ráð fyrir að mikill tími fari í akstur á vinnutíma á vikulegum grunni?
22) Í nýju skipuriti er talað um sérkennara en ekki er óskað eftir umsögn um starf hans. Skólaráð óskar eftir starfslýsingu ásamt svörum við eftirfarandi spurningum: a) Hvert verður verksvið þessa sérkennara? b) Hver verður kennsluskylda hans?
23) Grunnskóli er ekki starfsstöð heldur sjálfstæður skóli. Hvort er um að ræða sjálfstæða grunnskóla / leikskóla eða sameinaða skóla með mismunandi starfsstöðum þar sem rætt er í greinargerð um starfsstöðvar í hverjum kjarna?
24) Hver ætlar að halda áfram að veita þá persónulega þjónustu sem fötluð börn hjá okkur hafa fengið og þar með talið dagleg samskipti við foreldra þeirra?
25) Er einhver í þessu ferli sem sér um að öllum lögum sé framfylgt gagnvart fötluðum einstaklingum er einhver í stjórnsýslunni eða réttindagæslumaður sem gætir hagsmuna þeirra?
26) Hver er ávinningurinn af því að fjarlægja fagfólkið úr skólunum og færa það inn á skrifstofu?
27) Hver er framtíðarsýnin varðandi skólanna í Fjarðabyggð?
28) Telja fræðsluyfirvöld virkilega skipta einhverju máli að kennsluskylda skólastjóra sé felld niður? Í Eskifjarðarskóla er hún t.d. 2 tímar
29) Þeir sem eru að samþykkja þessar breytingar telja þeir sig vera vel upplýsta varðandi skólastarfið og hafa þeir faglegar forsendur til slíkra ákvarðana?
Skólaráð Eskifjarðarskóla harmar mjög þann farveg sem fræðslumál í Fjarðabyggð stefna í með þessum miklu breytingum sem á að þvinga inn í skólanna án nokkurs samráðs við fagfólkið sem þar vinnur. Í ljósi þess þá áskilur skólaráð sér þann rétt að kalla eftir samráði úr sínu baklandi þ.e. fulltrúar foreldra kalla eftir samráði úr foreldrasamfélaginu, fulltrúar kennara og fulltrúar starfsfólks kalla eftir samráði frá öllum kennurum og öðru starfsfólki o.s.frv.
Einnig fer skólaráð Eskifjarðarskóla fram á að þeim spurningum sem varpað hefur verið hér fram verði svarað skýrt og skilmerkilega og að svör við þeim liggi fyrir þegar skólaráð fundar með sínu baklandi að því ferli loknu telur skólaráð Eskifjarðarskóla sig fyrst tilbúið að veita fyrirhuguðum breytingum umsögn.
Skólaráð Eskifjarðarskóla vill koma því á framfæri við fræðsluyfirvöld, bæjarráð, bæjarstjórn og bæjarstjóra Fjarðabyggðar að ráðið telur að það skynsamlegasta sem hægt væri að gera í stöðunni er að seinka þessum breytingum, vinna þær upp á nýtt í sátt og samlyndi við allt starfsfólk skólanna og skólasamfélagið í heild og skapa þannig einingu um skólamál í sveitarfélaginu. Munum að starfsemi skólanna er gríðarlega dýrmæt í samfélaginu og vanhugsaðar illa útfærðar breytingar bitna bara á þeim sem síst skyldi en það eru nemendur okkar.
Fyrir hönd skólaráðs Eskifjarðarskóla
Sigrún Traustadóttir
Skólastjóri Eskifjarðarskóla
Formaður skólaráðs