GSM símanúmer Dvalarinnar er 868-9154
Nemendur yngstu bekkjanna eiga þess kost að koma í Dvölina að loknum skóla og dvelja fram eftir degi. Þannig getur lengsta dvöl þar orðið frá 13:00- 16:30. Margir krakkar nýta sér þessa þjónustu og eru í Dvölinni í góðu yfirlæti við leiki og störf. Starfsmenn Dvalarinnar eru þær sem er Ingunn Rut Sigurðardóttir forstöðumaður, Borghildur Birna Þorvaldsdóttir, Dovilé Rinkeviciené, Helga Dröfn Ragnarsdóttir, Meritxell Castells Flores og Þórhildur Tómasdóttir.
Vistunargjald frá 1. febrúar 2024 miðast við gjaldskrá Fjarðabyggðar. Gjaldskráin er endurskoðuð reglulega af bæjarstjórn Fjarðabyggðar og er foreldrum því bent á að kynna sér gjaldskrá frístundaheimila á heimasíðu Fjarðabyggðar. Systkinaafsláttur er milli vistunargjalds á frístundaheimili og vistunargjalds í leikskóla. Afsláttur á leikskóla er óbreyttur, en barni 2 á frístundaheimili fylgir 25% afsláttur, barni 3 á frístundaheimili fylgir 50% afsláttur og barni 4 á frístundaheimili fylgir 100% afsláttur. Gjaldið greiðist mánaðarlega, fyrirfram.