Við héldum hátíð í salnum okkar föstudaginn 15. nóvember, og tilefnið var Dagur íslenskrar tungu. Þessi ágæti dagur er haldinn til heiðurs okkar ástsæla ljóðskáldi, náttúrufræðingi og nýyrðasmið, Jónasi Hallgrímssyni sem fæddist þann 16. nóvember árið 1807.
Nemendur skólans höfðu æft upplestur ljóða, ævintýra og sagna. Lesið var úr nýjum barna- og unglingabókum sem vakið gætu áhuga krakkana í skólanum. Nemendur 6. bekkjar sungu hið fallega lag: Á íslensku má alltaf finna svar. Með því var minnt á hve málið okkar býr yfir miklum möguleikum á sviði nýyrða og blæbrigða.
Auk nemenda 6. bekkjar settu Nanna, Selma, Eyja, Katrín, Róbert, Nicolas, Aron, Tómas og Sara Antonía svip sinn á hátíðina með fallegum upplestri. Kennararnir Friðrik Á. Þorvaldsson og Arndís Bára Pétursdóttir héldu utan um dagskrána og nýttu sér m.a. efni frá Guðmanni Þorvaldssyni kennara sem lagði sín lóð á vogarskálina. Við þökkum nemendum sérstaklega fyrir þeirra framlag til hátíðarinnar.
Dagur íslenskrar tungu er dagur sem ætíð þarf að vekja athygli á og vinna með. Þann dag hefja líka nemendur 7. bekkjar undirbúning sinn fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem haldin er árlega í skólum landsins.
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is/johannag@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is