Miðvikudaginn 7. september kl. 17:00 mun Þorgrímur Þráinsson flytja fyrirlesturinn Verum ástfangin af lífinu í matsal Nesskóla. Fyrirlesturinn fjallar um að bera ábyrgð á sjálfum sér, huga að litlu hlutunum daglega, setja sér markmið og vera flottur persónuleiki — hjálpa öðrum. Nemendur í 9. og 10. bekk fá að njóta fyrirlestursins í skólanum fyrr um daginn.
Foreldrum nemenda í 1. - 10. bekk er boðið á fyrirlesturinn sem tekur um 70 mínútur. Við vonumst til að sjá ykkur sem flest á miðvikudaginn.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur fyrir og eftir fyrirlesturinn.
Bestu kveðjur,
Jóhanna og Sigrún
Lambeyrarbraut 16 | 735 Eskifjörður Sími á skrifstofu: 4709150 Netfang: sigrun@skolar.fjardabyggd.is/johannag@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá Símtölum í síma 470-9150 er svarað frá 7:45 til 13:30. |
Tilkynningar um veikindi nemenda: Á mentor síðu nemenda/ í síma:470-9150/ email: olla@skolar.fjardabyggd.is