Fréttir

Vordagur tvö - 28. maí

Fjörið heldur áfram í þvílíkri blíðu þar sem hitinn fór upp í 15 stig. Yngsta stigið hóf daginn í sundlauginni okkar og þar var kátt í höllinni. Þau fóru síðan þaðan og sungu fyrir heimilisfólkið í Hulduhlíð þrjú lög. Miðstigið hélt áfram með smiðjurnar sínar og þar vakti mikla athygli barnanna að fá að róa sín fyrstu skref á kajak en Kristinn Þór í Sjósporti hélt vel utan um krakkana og á hann skildar miklar þakkir fyrir góða hjálp. Elstu nemendurnir fóru í langa göngu út í friðlandið á Hólmanesi. Frábær ferð eftir nýjum göngustíg sem auðveldar ferðina mikið. Flottur dagur í skólanum.
Lesa meira

Fyrsti vordagur - miðvikudagur

Það lék við okkur veðrið á fyrsta vordeginum, margt í gangi á öllum stigum og nemendur fengu góða skemmtun, útiveru, þrautir og nóg af súrefni í lungun. Nemendur á elsta stigi fóru á hjólum út á sveitina og á leiðinni leystu þeir ýmsar þrautir, keppnin var hörð milli hópa en gleðin þó í fyrirrúmi. Á miðstiginu unnu krakkarnir í smiðjum og skemmtu sér vel við allt sem þar var boðið upp á. Yngstu börnin gengu eftir göngustíg ofan byggðar alla leið út á Móeyri þar sem leikir og fjör beið þeirra. Flottur dagur hjá öllum.
Lesa meira

Vordagar og skólaslit 2020

Það verða vordagar hjá okkur nú í lok skólaársins. Hefðbundinni kennslu lýkur þriðjudaginn 26. maí og við taka þrír útivistardagar þar sem hvert stig fer á ferðina og nýtur skemmtilegra daga úti við. Það er margt í gangi, hjólaferðir, gönguferðir, fjöruferðir, sauðburður, laxeldisfræðsla, listasmiðjur, sund og svo mætti lengi telja. Við vonum að veðrið leiki við okkur á góðum dögum. Skólaslit 10. bekkjar verða fimmtudaginn 28. maí kl. 18:00 en daginn eftir kveðjum við síðan 1. - 9. bekk að aflokinni grillveislu í hádeginu. Þá tekur sumarið við nemendum okkar en starfsdagar hjá starfsfólki skólans við frágang og skipulag næsta vetrar.
Lesa meira

1. bekkingar fá góða gjöf

Það voru ánægðir krakkar í 1. bekk sem tóku á móti reiðhjólahjálmum að gjöf frá Eimskip og Kiwanis. Með gjöfinni er stuðlað að enn frekara öryggi í umferðinni og óhöppum og slysum fækkað. Við hvetjum alla, sama í hvaða aldurshópi þeir eru, til að hafa hjálma á höfði þegar farið er í lengri sem styttri hjólaferðir. Við þökkum Eimskip og Kiwanis fyrir góða gjöf sem sannarlega kemur sér vel.
Lesa meira

Skólastarf eftir 4. maí

Eins og allir efalaust vita verður reynt að hafa skólahald með sem eðlilegasta móti frá og með mánudaginum 4. maí. Okkur er uppálagt að halda reglur varðandi handþvott og þrifnað eins og hægt er og þó svo að nemendur megi koma saman í stærri hópum er starfsfólk beðið um að huga vel að tveggja metra reglunni sín á milli. Stundaskrár nemenda breytast aftur í fyrra horf, skólastarf hefst hjá öllum kl. 8:00 og nemendur fá þann tímafjölda í skóla sem áður var. Skólinn opnar kl. 7:50 fyrir alla nemendur. Nemendur 1. – 6. bekkjar nota aðalinngang skólans en nemendur 7. – 10. bekkjar nota áfram starfsmannainngang að ofanverðu. Íþróttir, sund, heimilisfræði, verkgreinar og val koma aftur á dagskrá nemenda. Í íþróttum og sundi er hreinlæti kannski aldrei mikilvægara og því nauðsynlegt að nemendur fari í sturtu og hugi vel að þrifnaði. Hádegismatur verður með sama sniði og fyrir Covidbreytingu fyrir þá nemendur sem nýta sér þá þjónustu. Við hugum vel að hreinlæti í matsal. Því miður neyðumst við til að fella vorskemmtun skólans niður að þessu sinni vegna fjöldatakmarkana sem í gildi eru. Við biðjum foreldra vinsamlegast eins og áður að koma ekki í skólann heldur hafa samband við okkar með aðkallandi málefni á rafrænan hátt eða gegnum síma. Foreldrar koma börnum sínum að skóla og taka á móti þeim sem áður þegar þau ganga frá skóla. Útskrift 10. bekkinga verður samkvæmt venju. Við skoðum fyrirkomulag þó nánar þegar nær dregur.
Lesa meira

Skólahald við sérstakar aðstæður - Páskafrí

Við í Grunnskólanum á Eskifirði höfum reynt eins og hægt er að aðlaga skólastarfið okkar að þeim breyttu aðstæðum sem við öll höfum fundið fyrir og snertir allt þjóðfélagið. Við reynum eins og hægt er að fylgja þeim fyrirmælum sem yfirvöld gefa út og hvetjum nemendur jafnt sem starfsfólk að virða eins og kostur er mátt skynsamlegrar fjarlægðar og þrifnaðar. Hvert aldursstig nemenda er eins aðgreint og hægt er og hver bekkur heldur saman sem eining. Nemendur elsta stigs er í skólanum fram að hádegismat en þá fara nemendur heim og vinna þá verkefni í fjarnámi undir stjórn kennara. Nemendur miðstigsins koma seinna í skólann og eru lengur fram á daginn í kennslu, þeir snæða hádegismat hver bekkur í sínu lagi. Nemendur yngsta stigsins halda nokkurn veginn sínum skóladegi enn sem komið er og Dvölin stendur þeim til boða eftir hádegi, þó með skertri starfsemi. Í nokkrum tilfellum hafa foreldrar ákveðið að halda börnum sínum heima og þá er mikil nauðsyn á góðum samskiptum milli kennara og foreldra þannig að nemendur geti sem best haldið sínu striki í náminu. Starfsmenn skólans hafa mætt þessum miklu breytingum með jákvæðni og eru svo sannarlega að gera sitt besta. Þessar breytingar á skólastarfinu reyna mjög á og á einhverjum tímapunkti gætu frekari breytingar átt sér stað en þær verða vel kynntar fyrir foreldrum áður. Við höldum stefnu okkar ótrauð fram að páskafríi en sjáum til hvort nauðsynlegt reynist að ráðast í frekari breytingar á skipulagi. Skólastjórar grunnskólanna í Fjarðabyggð eru í nánu samstarfi þessa daga undir stjórn fræðslustjóra. Þeir hittast reglulega á netfundum og ráða þar ráðum sínum. Páskafríið hefst að loknum skóladegi, föstudaginn 3. apríl. Nemendur mæta aftur til vinnu sinnar í skólanum miðvikudaginn 15. apríl. Fyrir þann tíma mun foreldrum verða tilkynnt það skipulag sem unnið verður eftir vikurnar eftir páskafrí. Við þökkum foreldrum þeirra góða þátt í að við höfum getað haldið skipulaginu okkar eins vel og raunin hefur verið. Það er öllum ljóst að heimili og skóli þurfa að vinna þétt saman þessa dagana þar til við sjáum fyrir endann á þessum vágesti sem herjað hefur á okkur.
Lesa meira

Skólahald, breytingar vegna breyttra aðstæðna

Fyrirkomulag skólastarfs í Eskifjarðarskóla í samkomubanni Grunnskólum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum að þeim skilyrðum uppfylltum að ekki séu fleiri en 20 nemendur í kennslu í sömu stofu og að nemendur blandist ekki milli hópa, s.s. í mötuneyti eða frímínútum. Jafnframt skulu gerðar ráðstafanir til að þrífa eða sótthreinsa byggingar eftir hvern dag. Þetta felur í sér meðal annars að: • Nemendur í hverri stofu skulu ekki vera fleiri en 20 – en auk þeirra eiga viðeigandi starfsmenn skóla að vera í sömu stofu. Nemendur verða aðeins í sínum stofum, sérgreinakennarar nota stofu þeirra líka. • Matsalnum verður skipt upp þannig að henti hverjum bekkjarhópi. Fyllsta hreinlætis verður gætt. Frímínútnagæslu verður þrískipt út á skólalóð þannig að hópar blandist ekki. • Íþróttaföt og sundfatnaður er óþarfur, engin formleg íþróttakennsla verður. Íþróttakennari skipuleggur nám í skólastofu hvers hóps eða nýtir gott veður til útiveru. Klæðum börnin vel, í góðu samræmi við veður. * Bann er lagt við búðarferðum nemenda. Nemendur skulu hafa með sér nesti í skólann. Einnig eiga þeir nemendur sem ekki eru í hádegismat að hafa með sér mat til að snæða í hádeginu með bekknum sínum. • Við biðjum foreldra að senda börn sín með vatn í vatnsbrúsa í skólann. Barnið hefur það vatn á borði sínu en tekur brúsann svo aftur með heima að skóladegi loknum og kemur með hann vatnsfylltan aftur að morgni. Við gefum börnum vatn með hádegismatnum. • Nauðsynlegt er að foreldrar noti sleppistæði neðan skólans eða við Valhöll. Þetta á einnig við foreldra elstu bekkja, þeir eru sérstaklega beðnir að nota sleppistæðin og börn þeirra ganga svo upp með skólanum og nota inngang á norðurhlið. • Okkur er uppálagt að hafa hreinlæti og handþvott í hávegum. Við hvetjum foreldra líka að brýna nauðsyn á þrifnaði fyrir börnunum. Nauðsynlegt er að takmarka að hópar hittist og því er farið í það að taka á móti nemendum á mismunandi tímum á tveimur stöðum í skólanum. Biðjum við foreldra að aðstoða okkur við að halda eftirfarandi tímasetningar sem best og sjá til þess að börn þeirra mæti á settum tímum. Mæting nemenda og staðsetning er sem hér segir: bekkir Inngangur Mæting í skólann 1 Aðal inngangur 7:50-8:00 2 Aðal inngangur 7:50-8:00 3 Aðal inngangur 7:50-8:00 4 Aðal inngangur 7:50-8:00 5 Aðal inngangur 8:10-8:20 6 Aðal inngangur 8:10-8:20 7 Aðal inngangur 8:10-8:20 8 Starfsmanna 8:20-8:30 9 Starfsmanna 8:20-8:30 10 Starfsmanna 8:20-8:30 Eins og sjá má er mæting á mismunandi tíma en ef systkini eru að koma á sama tíma í skólann er það í lagi svo lengi sem þau fara beint í sína heimastofu. Eðlilega mun stundaskrá eitthvað raskast. Það verður allt kennt í heimastofum, verk- og listgreinar, íþróttir og valgreinar líka. Það verður einhver uppstokkun á þeim tímum þar sem ekki er hægt að kenna í verk- og listgreinastofum. Veikindi og leyfi frá skóla: • Þurfi barn að vera heima er mikilvægt að forráðamenn setji sig í samband við skólann svo umsjónarkennari geti skipulagt nám viðkomandi barns í samráði við forráðamenn. Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna ef sótt er um leyfi fyrir þau. • Sýni nemandi einkenni sem líkjast sjúkdómseinkennum sem tengjast kórónaveirunni skal hann ekki sækja skóla og foreldrar vera í samráði við heilbrigðisyfirvöld um dvöl þeirra heima (sími 1700). Algengustu einkennin eru hiti, hósti, þreyta, vöðva-, bein- eða höfuðverkur. Vinnuskipulag í Dvölinni • Aðstaða í Dvölinni er breytt og felur það í sér að hver bekkur þarf að vera sér og því er búið að skipta upp svæðinu á Dvölinni þar sem hver bekkur á sína stöð sem enginn annar notar. Þetta getur verið kerfjandi og íþyngjandi fyrir börnin þrátt fyrir að reynt verði að brjóta upp daginn á sem fjölbreyttastan hátt. Af þessum sökum eru þeir forráðamenn sem hafa tök á beðnir um að sækja börn sín fyrr. • Þeir forráðamenn sem hyggjast sækja börn sín fyrr eru beðnir um að hafa samband við Alicju, forstöðumann Dvalarinnar alicja@skolar.fjardabyggd.is. Þar sem skólinn verður læstur og enginn kemst inn. Þeim börnum verður skilað við aðalinngang skólabyggingar. Börnum verður annars skilað út á skólalóð kl. 16:00, 16:15 og 16:30. Vegna samkomubannsins eigum við leggja áherslu á eftirfarandi: 1. Foreldrar eiga ekki að koma inn í skólann með börnum sínum. Starfsmenn munu taka á móti nemendum í anddyri í byrjun skóladags og fylgja þeim þangað í lok dags. 2. Ef foreldri þarf bráðnauðsynlega að koma í skólann þá verður hann að gera vart við sig hjá ritara/skólastjórnendum, lögð er áhersla á handþott og sprittun. 3. Sú breyting verður á að skólinn opnar kl. 7:50 á morgnana fyrir fyrstu hópana en ekki kl. 7:30 eins og verið hefur. 4. Sé þörf á fundum með foreldrum verða þeir skipulagðir sem fjar- eða símafundir. Markmiðið er að halda úti sem bestu skólastarfi í samkomubanni, með þeim takmörkunum sem nauðsynlegar eru. Nemendur geti þó vonandi haldið daglegri rútínu sem hjálpar þeim til aukinnar virkni. Við leggjum okkur öll fram um að fylgja fyrirmælum yfirvalda um samkomubann og takmörkun á hópastærðum og því er nauðsynlegt að huga vel að afþreyingu barnanna eftir að skóla lýkur og virða takmarkanir samkomubanns. Það skal tekið fram að þetta er skipulag í upphafi samkomubanns og getur tekið breytingum frá degi til dag. Því biðjum við ykkur um að fylgjast vel með tölvupósti og á heimasíðu skólans, www.grunnesk.is. Ef eitthvað er óljóst og einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband við Ástu, astasv@skolar.fjardabyggd.is og Frissa, frissi@skolar.fjardabyggd.is Með virðingu og von um gott samstarf - Starfsfólk Eskifjarðarskóla
Lesa meira

Áríðandi tilkynning varðandi breytingu á skólahaldi

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Sveitarfélagið Fjarðabyggð vinnur nú að skipulagningu skóla- og frístundastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur mælst til þess að öll sveitarfélög fylgi þessu fordæmi og hafi starfsdag í skólum á mánudaginn. Vegna þess hefur Fjarðabyggð ákveðið að mánudagurinn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggðar, ásamt frístundarheimilum til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt fagstarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til. Foreldrar/forráðamenn leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðum sveitarfélagsins og á heimasíðum grunn- og leikskóla.
Lesa meira